Prófíll

  • Nafn: Sigurrós
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: ÖHH.... það er erfitt að fara að segja eitthvað ákveðið um sig, en ég skal reyna :o) Ég heiti s.s Sigurrós og er fædd í Reykjavík en uppalin í Grindavík. Ég bý þar þó ekki lengur :o) Ég bý í Reykjavík með Árna mínum og þremur börnum okkar, þeim Elínrós, Ragnari Gabríel og Kristófer Smára. Ég er í barneignarleyfi og líkar það fínt, en var áður að vinna í Ikea og þar áður í námi á Sjúkraliðabraut í FÁ. Ég hyggst klára námið fyrr en seinna:D Ég hef líka unnið víðsvegar um landið við aðallega fisksstörf, þannig að ég er engin pemppía... bara hörkukvendi þó ég segi sjálf frá! :o) Ég held ég sé bara ósköp venjuleg stelpa annars, með ósköp venjuleg áhugamál og reyni að hafa gaman að lífinu :o)

Atburðarteljari

Spjallkubbur

..Augnablik

Klukkan

Könnun

Ætlarðu að segja nei??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

1 OKTÓBER....

01. október 2007 klukkan 18:59

..... kominn og það þýðir það, að í þessum mánuði mun þriðja barn mitt líta dagsins ljós! Það er ekki séns að það kúri í bumbu fram í nóvember :D

Mér finnst þetta hafa liðið ótrúlega hratt og í dag verða aldrei meira í 3 vikur í krílið. Var í morgun hjá fæðingarlækni og eftir skoðun og tékk, vill hann meina að barnið taki sér tvær vikur til viðbótar að koma, en það er alveg í takt við fyrri meðgöngur. Ég er sjálf að vona að það sé nú styttra í þetta en tvær vikur, þó þær yrðu nú sjálfsagt fljótar að líða...

Maður er bara orðinn svo þreyttur og þungur á sér og farin að finna fyrir auknum verkjum, en þeir eru þó óreglulegir....

En allavega... það fer að koma að þessu! :D

Þetta veður...

27. september 2007 klukkan 12:35
... er bara viðbjóður! Samt gott til þess að hugsa að maður á bara eftir að húka inni í allann dag, s.s ekkert á dagskránni í dag... ekkert sund eða mæðraskoðun eða neitt þannig....

Mér stendur reyndar til boða að fara á hitting í kvöld, en ég er að hugsa um að slaka á bara með familíunni... ekki mikill tími sem við eigum eftir sem fjögurra manna fjölskylda og þegar fimmti einstaklingurinn bætist við, þá takmarkast án efa tíminn sem maður getur hlúð að hinum... allavega fyrst um sinn.

Ég ætlaði núna að vera voða dugleg og blogga eitthvað af viti, en nei... þegar maður sest við tölvuna, er eins og maður tæmist bara...

En þá ætla ég ekkert að hafa þetta lengra í bili. Hvet ykkur samt til að skoða fréttablaðið dagsett 27 september. Í því blaði er æskuvinkona mín, hún Ásta í viðtali vegna fötlunar sinnar (heyrnarleysi) og þann dónaskap sem henni er sýndur í starfi þess vegna. Viðbjóðslegt hvernig fólk getur látið og sýnt öðrum ókurteisi og dónaskap, af því að það er starfandi við þjónustustörf. Eins og það fólk sé brynvarið skætingi og dónaskap og geti tekið því bara eins og ekkert sé.

Ég meina... hvernig er það hægt, þegar fleiri fleiri atvik af því taginu eiga sér stað.. dag hvern??

Svo er þetta sama fólk kvabbandi yfir því að útlendingar afgreiði það í verslunum. Ég meina... íslendingar vilja ekki vinna svona vinnu, bæði vegna launa og þeirrar niðurlægingar sem það verður fyrir. Og útlendingarnir eru að díla við þetta fólk núna, en þess verður ekki langt að bíða að það láti ekki bjóða sér svona og hver sér um kúnnann þá... ROBOT?!

Ja, það lætur nærri að það sé skásti kosturinn... er þá að minnsta kosti ekki heyrnarlaust og talar tungum og jú... er brynvarið!! :D

Dekur og villa...

18. september 2007 klukkan 23:50
Sjæsí, fór í meðgöngunudd í Laugum og jú, plokkun og litun líka og get ekki sagt að það hafi verið beint ódýrt, en guð almáttugur, þetta var sko hverrar krónu virði og rúmlega það!! Ég er enn upp í skýjunum af þvílíkri sælu. Og að loknu nuddi, fór ég í baðstofuna og ég hef reyndar aldrei komið þangað áður og fannst hálf óþægilegt að vera þarna ein og kunna ekkert og vita ekkert...

Það er þarna pottur og á veggnum fyrir ofan eru "sáðfrumumyndir". Potturinn er með sjávarseltu og að kannski af þeim sökum var yfirborð vatnsins frekar hvítkennt. Ég þarf kannski ekki að fara frekari orðum um það, að það var ekki beint geðslegt að ætla í það.. með sáðfrumumyndirnar fyrir ofan :D

En já, nuddið.... mikið ótrúlega sem það var þægilegt. Fannst reyndar spes að bumban var nudduð líka og ég þakka fyrir að það var kona sem nuddaði mig, átti fyrst að vera karlmaður sem nuddaði mig, en ég baðst undan því... ég er hreint ekki viss um að ég hefði fílað það... 

Mæli með þessu.. klárlega!

En annað, var að skoða í kvöld utan á Grýtupakka og ég hélt að ég væri ekki í læs lengur! Það stóð utan á pakkanum: "Bolognese grýta með pöstuskrúfum" Hmm.... ég las síðan aftan á pakkann og þar stóð: " Toro bólógnísk grýta með pöstuskrúfum"....  Ég er nú nokk viss um að ég sé læs hehehe, en þetta á allavega ekki að skrifa svona... " Árni, eigum við að hafa pöstu í matinn?" Hahahahahaha.

Ég er samt að spá í að gera með ferð í búð, í þeim tilgangi einum að kanna fleiri svona pakkningar frá Toro, gæti orðið heilmikil skemmtun :D

Skil ekki þetta væl....

13. september 2007 klukkan 10:08
.... blöð dagsins slá upp á forsíðu, fréttum um að Randver Spaugstofuleikari, hafi verið rekinn...

SO WHAT?! Maðurinn er arfaslakur leikari og það er nákvæmlega engin eftirsjá að þessum leikara..

Fyrir lifandis löngu, hefði átt að segja manninum upp og hann hefur fengið að "hanga" með liðinu, upp á kunningsskap og ekkert annað...

Laun starfsmanna Ríkissjónvarpsins eru greidd, með skattpeningum okkar og ef völ er á betri leikurum, því þá ekki að ráðstafa fénu í þá leikara sem kunna til verka? Er þetta kannski spurning um reynslu?? Jú, maðurinn er hokinn af reynslu... (Right) en reynslan segir manni ekki endilega að maður sé þá sá besti... ég meina, í hans stað mun Hilmir nokkur Snær koma og bíddu.. af þessum valkostum tveim í eitt stöðugildi innan spaugstofunnar... Hilmir hefur án nokkurs vafa vinninginn!!

Ég hef ekkert persónulega á móti Randver, hann er bara lélegur leikari og á ekki að fá að hanga á launaskrá Ríkissjónvarpsins svona "aþþí bara"....

Og svo það sé algerlega á hreinu, þá er ég enginn sérstakur aðdáandi Spaugstofunnar... bara þoli ekki klíkuskap og maðurinn var þarna af eintómum klíkuskap og að ætla að væla út af ákvörðun dagskrárstjóra er bara rugl, þetta er einhver sú albesta ákvörðun sem hann hefur tekið... allavega nú um mundir...

Fór...

10. september 2007 klukkan 15:23
... í vaxtarsónar í dag upp á lansa og kom allt vel út. Barnið komið í höfuðstöðu, liggur rétt og mælist nú 12 merkur. Þetta væri svo sem ekkert merkilegt, nema fyrir það að nákvæmlega 6 árum áður og einmitt á mánudegi, var ég mætt upp á lansa að eignast eins og eitt stykki stúlkubarn...

Já, yndislega prinsessan mín er 6 ára á þessum dýrðardegi. Þessi dagur.. 10 september, hefur þó alltaf verið afmælisdagur í minni nánustu fjölskyldu... já, í alveg 27 ár, þar sem Tobbi bróðir minn, á einmitt afmæli líka í dag.

Þannig að ég man þennan dag ekki öðruvísi en húllumhæ dag, ja... nema kannski fyrir 6 árum... ekkert svo mikið húllumhæ, stórann part þess dags, en nákvæmlega 21:09, snarbreyttist það og ég fékk stóra og stæðilega stúlku í fangið! :D

Til hamingju með afmælið, Elínrós og Tobbi.. og Árni minn, til hamingju með daginn í gær! :D

Ég verð að játa....

05. september 2007 klukkan 11:41
.... mig sigraða. Ég er búin að fara í gegnum einn stórann kassa af ungbarnafötum og ætlaði s.s að taka út það sem ég hef ekki not fyrir, en aðrir gæti kannski haft not af og henda öðru sem er frekar ósmart.

Árni var búinn að segja að ég gæti engu hent, en ég ætlaði jú aldeilis að sanna að það gæti ég sko víst. En nei... ég er búin að fara í gegnum kassann og það sækja á mig minningar af hinum börnunum í hinu og þessu og ég bara má ekki missa neitt af þessu... og svo mun bara safnast í sarpinn :D Ég ætti kannski ekkert að vera að stússast þetta ein, fá Árna með mér í þetta... sem er laus við alla tilfinningasemi og ég verð bara að gjöra svo vel að gera mér það að góðu, ef hann vill henda einhverju eða láta frá sér....

Og já, þegar ég tala um að safna í sarpinn, þá er Ásta vinkona að koma heim frá Boston og hún keypti víst helling á krílið og ekki má gleyma.. hin börnin, hún er nottla bara yndislegust! Svo það verður gaman að skoða það allt saman, en svona eftir tiltekt úr einum kassa sem hefur að geyma flest ungbarnafötin, sé ég að það sem mig vantar kannski helst eru treyjur, sokkabuxur og samfellur á þessi minnstu... en ég kemst nú líklega af með það sem til er...

Vá, ég trúi því varla að það sé orðið svona stutt í krílið... en það verður bara gaman að þessu.. hlakka bara til! :D

Og svo ég svari nú Huldu P, síðasta kommenti hennar við færsluna um "dag 2", þá hef ég ekki farið í útsýnisflug í þyrlu hehehe og það væri sko ekki leiðinlegt að prófa það! Draumurinn er útsýnisflug yfir New york... og fyrr fer ég ekki undir græna torfu, nema hafa prófað það... dead or alive.. nei ojjjjj heheheheh :D

Og fyrst ég er nú farin að tala um USA, þá ætla ég að næsta ári í borgarferð einhvert í USA. Þar með er ég búin að festa það niður í bloggið mitt og mun ég standa við þetta.... það er ekki hægt að tæplega þrítug manneskjan hafi ekki farið út fyrir Evrópu... þetta er bara algert hneyksli! :D

Svo þegar ég verð fimmtug, þá er það Afríka eða kannski Ástralía.... nei, kannski fer ég bara til Ástralíu þegar ég verð fertug í "Nágranna" pílagrímaferð.... Hvað segið þið um það?? :D

Stundum...

01. september 2007 klukkan 01:22

...finnst mér hundleiðinlegt að hangsa fyrir framan sjónvarpið, finnst meira gaman að vera að gera eitthvað allt annað. Stundum finnst mér gaman að gleyma mér yfir sjónvarpinu og fara þannig inn í annan heim um stund :D Svoleiðis augnablik er ég að upplifa núna, en nei... sjónvarpsdagskráin er alveg mis.... 

Gæti sjálfsagt hlammað mér (eða ekki) uppí rúm og gleymt mér í bóklestri, en ég er ekki í stuði fyrir það.. þó bókin sem ég er að lesa sé alveg ágæt. Ég er s.s að lesa "Tryggðarpant" eftir Auði Jónsdóttur. Ekkert meistarastykki en það er nú eitt... gagnrýnendur hafa lýst lofi á þessa bók og ég verð að segja að oft á tíðum, þykir mér fólk ofmeta hvert annað og þær listgreinar sem það tengist.. eins og það sjái sér hag í að draga upp kunningjann... því jú, allir þekkja alla í þessum litlu samfélögum sem einkenna listamenn, rithöfunda og þess háttar og já og gera þannig hvert öðru soldið hærra undir höfði en efni standa til....

Allt til að selja u c :D

Ég reyndar er með aðra bók sem ég á eftir að lesa og get bara ekki beðið eftir að lesa... "Ein til frásagnar" ég held að maður verði ekki samur eftir lestur á þeirri bók...

Auðvitað á ég að vera farin inn í rúm bara....  mér varð nefnilega litið á klukkuna og já, það er orðið vel framyfir kristilegann háttartíma... þá er nú gott að ég er ekkert sérlega trúrækin hahahahahaha :D

Ætlaði bara að segja..

25. ágúst 2007 klukkan 00:25

 ... að ég var að henda inn ljóði sem ég samdi aðfaranótt páskadags sl. Geymdi alltaf ljóðið í símanum, því ég vaknaði þessa nótt með þetta ljóð í hausnum og greip símann til að geta munað ljóðið. Var s.s að renna í gegnum símann og taka til í honum, þegar ég sá ljóðið og ákvað að deila því með ykkur. Reyndar er lag við ljóðið líka, sem ég samdi... en þessi síða bíður ekki upp á tóndæmi hehehe. En allavega ljóðið finnið þið hér til hliðar....

Það var hringt....

24. ágúst 2007 klukkan 20:08
...... í mig í morgun og mér gert tilboð í yarisinn. Ég ákvað að taka því og er yarisinn s.s seldur. Og það er svo fáránlegt að sjá á eftir bílnum. Reyndar þegar ég kom á bílasöluna að skrifa undir, þá var manneskjan farin á bílnum, þannig að ég gat ekki "kvatt" bílinn. Hann reyndist mér vel og ég seldi hann ekki nema bara af því að stærð hans hentar ekki stækkandi fjölskyldu...

Ótrúlegt hvað maður er tötsí eitthvað... s.s mjög blendnar tilfinningar þegar Elínrós hóf skólagöngu sína í dag og þegar ég kom að ná í hana í frístundaheimilið, sagði hún mér að hún væri búin að týna úlpunni sinni... einmitt af svona ástæðu, var ég líka smeyk við að senda hana í svona stórann skóla. En allavega... þegar hún ætlaði að fara í frímínútur í morgun, var búið að taka úlpuna hennar af snaganum og var hún úlpulaus í dag. Ég reyndar fór að skólaplaninu í hádeginu þegar frímínútur voru og sá þá að Elínrós var bara á peysunni, en það voru fleiri krakkar þannig að ég að var ekkert að gera neina athugasemd við það...

En þegar ég s.s kom og sótti hana, fórum við í að leita að úlpunni... á skólalóðinni og um allt í skólanum.. sem er ekkert nema stigar! Var ég þreytt eftir allt labberíið. Starfsmaður í skólanum var með hálfgerðann skæting þegar ég spurði í sakleysi mínu hvar ég gæti fundið óskilamuni og sagði: "Þetta er nú öðruvísi en í leikskóla og þau þurfa að bera meiri ábyrgð" Ég veit það alveg og var ekki að gera neina athugasemd við þetta. Barnið týndi úlpunni... PUNKTUR. Ég hinsvegar trúi Elínrós alveg að hún hafi komið að snaganum og engin úlpa og kannski einhver tekið hana í misgripum.

Hún var allavega svo leið þegar við löbbuðum að bílnum og þegar ég leit á hana, fór ég að skæla með henni.

Fer síðan að skrifa undir pappírana fyrir söluna á bílnum, þegar hringt er frá skólanum, úlpan fannst.. en hafði þá verið falin út í skógi einhverjum á skólalóðinni og í raun hending að úlpan hafi fundist.

Mikið var ég fegin.. en já, allt fór þó vel að lokum :D

Fyrsti skóladagurinn.....

24. ágúst 2007 klukkan 08:26
.... var að hefjast hjá frumburðinum og vá hvað ég hefði ekki trúað því að óreyndu, hvað það tekur á að skilja barnið eftir í skólanum. Ég mátti hafa mig alla við að skæla ekki inn á skólastofunni og á leið út.... úff!

Kannski spila hormónarnir stórann þátt í því hvað maður er meyr á svona stundu, en ég held að það sé alveg sama... ég ætti samt erfitt með þetta.

En það sem dótlan var spennt yfir þessu. Vildi í morgun fá að útbúa sjálf nestið, var með ákveðna hárgreiðslu í huga og var með skoðanir á því, hvað átti að geymast í hvaða hólfi í töskunni. Hún er nottla bara flottust! :D

Æ, hún á eftir að standa sig vel og ég hlakka bara til að heyra hvernig fyrsti skóladagurinn var.. en á meðan ætla ég að reyna að jafna mig á þessu hehehehe :D

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins