Prófíll

  • Nafn: Sigurrós
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: ÖHH.... það er erfitt að fara að segja eitthvað ákveðið um sig, en ég skal reyna :o) Ég heiti s.s Sigurrós og er fædd í Reykjavík en uppalin í Grindavík. Ég bý þar þó ekki lengur :o) Ég bý í Reykjavík með Árna mínum og þremur börnum okkar, þeim Elínrós, Ragnari Gabríel og Kristófer Smára. Ég er í barneignarleyfi og líkar það fínt, en var áður að vinna í Ikea og þar áður í námi á Sjúkraliðabraut í FÁ. Ég hyggst klára námið fyrr en seinna:D Ég hef líka unnið víðsvegar um landið við aðallega fisksstörf, þannig að ég er engin pemppía... bara hörkukvendi þó ég segi sjálf frá! :o) Ég held ég sé bara ósköp venjuleg stelpa annars, með ósköp venjuleg áhugamál og reyni að hafa gaman að lífinu :o)

Atburðarteljari

Spjallkubbur

..Augnablik

Klukkan

Könnun

Ætlarðu að segja nei??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Úff.. hvað manni líður illa í hjartanu..

13. ágúst 2008 klukkan 10:02

Já, þessa dagana er ég með eldri pjakkinn minn i aðlögun á leikskólanum hér i hverfinu. Alveg frábær leikskóli og starfsfólk. Ég sé mest eftir að hafa ekki sett börnin mín tvö elstu á þennan leikskóla fyrr..  Reyndar, þá blómstraði rósin mín á gamla leikskólanum og mér fannst ég aldrei geta tekið það af henni að færa hana í leikskólann hér í hverfinu og taka þannig frá henni þá vini sem hún hafði eignast.. svo er hún í engu sambandi við þá í dag, enda tvístraðist hópurinn í skóla borgarinnar.

En erkiengillinn minn, náði að mér fannst ekki sömu fótfestu á þeim leikskóla.. Þarna kom nýtt fólk til starfa, borgin tók yfir reksturinn og æ.. sjálf átti ég erfitt með að kynnast fóstrunum og fannst allt eitthvað svo kuldalegt og mikill stofnanabragur á öllu.. eitthvað sem ég þekkti ekki. Ég þekkti allar "gömlu" fóstrurnar og er enn í sambandi við einhverjar þeirra og mér fannst ég hafa betri yfirsýn yfir það sem rósin var að gera dag hvern.

En allavega.. mér fannst þjóðráð að setja bara eldri pjakkinn á leikskólann í hverfinu, sem er nota bene við hlið skólans sem rósin er í, en fram að því hafði ég verið treg til þess.. en man, aðlögunin gengur vonum framar, en nú í morgun þegar ég kvaddi drenginn.. þá leið mér eins og titill þessa blogg gefur til kynna. Erkiengillinn ekki alveg sáttur og ég kvaddi hann þar sem hann grét.. jesús minn, hvað það var erfitt en ég held að það sé allt í gúddí núna og hann eigi eftir að taka brosandi á móti mér þegar ég sæki hann á eftir.

En já þessi leikskóli er bara einhvernveginn svo algert æði og þó mikið stærri sé, en sá gamli.. þá er allt mun heimilislegra á nýja leikskólanum.. eða s.s viðkunnanlegri og starfsfólkið sem er búið að starfa margt hvert frá opnun leikskólans (sem mér finnst segja helling) er bara ótrúlega frábært og starfsgleðin skín af því.

Það róar mitt litla hjarta og réttlætir til fullnustu þá ákvörðun okkar bóndans að færa erkiengilinn á þennan leikskóla.

Svo er alger bónus að maður labbar bara með drenginn í og úr leikskóla og oft var þörf en nú er nauðsynlegt að kerlingarhróið standi upp úr dældinni á sófanum og hreyfi á sér rassg....! :D Þannig að það er bara til góðs og það er einkar skemmtilegt að labba með drengnum og spá og spekúlera með honum í umhverfinu :D

 

Ég er á lífi...

06. ágúst 2008 klukkan 21:56

.... hef bara einhvernveginn ekki svo margt að segja.

Sumarið að verða búið.. og mér finnst það alltaf eftir að verslunarmannahelgin er liðin undir lok. Merkilegt samt að um hverja verlsunarmannahelgi fæ ég nettann fiðring og löngun til að vera á Þjóðhátíð í eyjum! En í ár upplifði ég þetta soldið í gegnum hana systur mína, heyrði í henni og við smsuðumst og vá.. það var sko ekki að slá á löngunina.

En í ár eyddi ég verslunarmannahelginni í Fossatúni með fjölskyldunni að sjálfsögðu og mamma kom með okkur. Fínasta ferð bara... fyrir utan drykkjuglatt pakk, sem kunni sér ekki hóf hvorki í drykkju né í gleðskapslátum og tónlistarmekkurinn.. horbjóður andskotans!! Kannski lét ég þetta soldið fara í taugarnar á mér.. en þarna var fjölskyldufólk að mestu og allt fór fram í mestu friðsemd hjá því fólki, þá var þarna ungt og barnlaust fólk með þessi læti og mig langaði stundum bara til að lesa yfir hausamótunum á þeim.. en áttaði mig jú í svefnrofunum á því að ég var í tjaldvagni og óvarin fyrir einhverjum skríl.. :D

Æi, er þetta kannski til marks um það að ég er að eldast og sé búin að gleyma æskuljómanum og allri dásemdinni sem því fylgir??  *ÆL*

Getur vart verið, fyrst löngunin í Þjóðhátíð er svona sterk.. ég get lofað ykkur því að ég er ekkert lamb að leika við þar.. þar myndi ég vafalaust hegða mér eins og þetta fólk og kannski verr.. gæti kannski verið að ég hafi tekið út þennan pirring útí þetta fólk, af því að ég var ekki að tjútta útí eyjum?? 

Gæti verið...

BATMAN

30. júlí 2008 klukkan 12:20

Hafirðu áhuga á spennu og hasarmyndum, þá ættirðu ekki að láta þessa mynd framhjá þér fara!!

Þessi mynd er alveg mögnuð og Heath Ledger í hlutverki Jokersins.. *ORÐLAUS* !! Það sem ég get sagt um hann í þessu hlutverki er, að hann er svo ólíkur sjálfum sér eins og maður þekkir hann... leikrænir tilburðir hans eru svo ótrúlegir að maður trúir því vart að þetta sé hann, en maður sér það jú á útlitinu :D

Mér hefði sko ekki dottið í hug, væri ég framleiðandi að þessari mynd, að fá hann í hlutverkið á sínum tíma og kannski eins gott að ég er ekki kvikmyndaframleiðandi.. því það á enginn eftir að toppa aðra eins frammistöðu og þar sem Heath er dáinn, þá efa ég að Batman myndirnar verði fleiri.. annað væri RUGL!

Ég sé að þessi færsla snýr ekkert að Batman sjálfum, heldur jokernum hehehe.. en í alvöru.. stórleikur Heaths sem Jokerinn, fær mann til að halda meira með honum.. s.s illmenninu heldur en sjálfum Batman! Segir það ekki eitthvað?? :)

En ég s.s fór á powersýningu.. ég veit í raun ekki um hvað það snýst, en ég býst að soundið sé meira á þeim sýningum.. allavega upplifði ég það þannig... sætin hristust við "hávaðann" og maður upplifði liggur við sjálfan sig í myndinni.

En já, ég vildi bara segja ykkur að DRÍFA YKKUR AÐ SJÁ MYNDINA, þið sjáið ekki eftir því!! :D

Farin og komin...

24. júlí 2008 klukkan 23:16
... já, þið urðuð ekkert vör við það að ég skrapp í ferðalag um landið þvert og endilangt??  Datt mér ekki... hehehehe :D

En allavega, ég s.s fór í ferðalag með fjölskylduna og tjaldvagninn í eftirdragi. Ferðalagið tók tæpar þrjár vikur, en ekki missa ykkur í ruglinu.. við gistum ekki allar nætur í tjaldvagninum, er kannski geggjuð en ekki það geggjuð!! :D  Fínt að ferðast með börnin, átti ekki alveg von á því mikla úthaldi sem þau höfðu fyrir þetta, en kannski yngsti ormurinn ekki á köflum sáttur.. og þá helst að sitja í bíl, ólíkt systkinum sínum.. ja, ef þau hafa ferða DVD þá þegja þau hehehehe :D

En já, eftir síðustu helgi var þreyta komin í liðið og þá aðallega mig.. ég er samt hálf friðlaus hérna heima.. langar að gera svo margt, kaupa gardínur og fínisera soldið heimilið.. og mig langar líka í útilegu.

En ég nenni ekki að setja inn ferðasöguna hér.. hafði mikið fyrir því að pikka inn ferðasöguna á heimasíður barnanna og læt það duga :D

Gleymi næstum að segja að í upphafi ferðalagsins, finn ég fyrir einhverjum hnúð í litla putta og svo var ég farin að fá verki í þetta, fer til læknis á króknum og hann segir þetta vera "ganglion" og ég eigi að fara í uppskurð inn á Akureyri. Ég segi að ég sé ekki úr Skagafirðinum og þá átti ég að tala við lækninn minn fyrir sunnan, sem ég og geri og þá segir hann mér að kreista þetta eða stinga á þetta.. sem var gert og djöfull var þetta vont. Þetta er sagt vera góðkynja æxli.. en þetta er að valda mér óþægindum og læknirinn minn hér heima, talaði um að ég skildi bara tala við sig þegar ég kæmi heim, ég hringi og ætla að panta tíma þegar ég fæ svo að vita að hann er í sumarfríi.. típýskt!! En það er ekki hægt að bóka tíma hjá lækninum fyrr en einhverntímann og einhverntímann... af því að hann er í fríi.. WHAT?!

Heyrið.. og svo í sumarfríinu lendir maður líka í stappi við Icelandair. Of langt mál að telja það allt upp, en ég hafði víst gleymt einhverntímann hér á blogginu að nefna það að Minneapolis er frá, á þeim tíma sem við ætluðum að fara.. því ekkert verður flogið þangað frá Icelandair eftir 22 okt minnir mig. En okkur var þá í staðinn boðið að fara til Boston. Við geymdum að taka ákvörðum um það,vildum kanna hvaða rétt við hefðum... búin að kaupa ferð til Minneapolis sem er svo felld niður. Vorum að spá í New York, en hættum svo við það... og ákváðum að fara bara til Boston á sömu dagsetningum og við ætluðum til Minneapolis. Nei, þá var það ekki hægt nema að þeir endurgreiddu okkur og við keyptum þá ferð til Boston sem er dýrari en ferð til Minneapolis.

Það kom ekki til greina af okkar hálfu, því lagalegur réttur okkar er sá að flugfélaginu ber að flytja okkur á áfangastað með öllum þeim tilkostnaði og varla er ódýrara að borga fyrir okkur innanlandsflug og gistingu í ónefndri borg, til þess að við kæmumst til Minneapolis.. (þó við værum í fullum rétti til þess) og við bentum flugfélaginu á það.. heyrðu, þá var ekkert mál að fara til Boston í 4 stjörnu hótel og á sama verði og við höfum borgað fyrir Minneapolis ferðina. Allur aukakostnaður leggst á flugfélagið.

Það er mjög ósvífið og ólöglegt af fyrirtækinu að bjóða endurgreiðslu og reyna að selja manni dýrari ferð.. það vita ekki allir hver réttur þeirra er, en lesið skilmálana þegar þið kaupið ferðir út... td, ef flugi seinkar um ég man ekki hvað langann tíma.. þá áttu rétt á ákveðinni peningaupphæð en fólk lætur sér nægja ferð til Evrópuborgar í sárabætur.. sem er hlægilega lítill kostnaður fyrir fyrirtækið, en það sem það í raun þyrfti að leggja út og þetta vita ekki allir...

Bara látið ekki taka ykkur í ósmurða stjörnuna! :)

En við erum s.s að fara til Boston og ég held að það sé ekkert síðra en Minneapolis.. ég allavega hlakka mikið til og veit að þetta verður bara gaman og skemmtileg upplifun :)

Sumarfrí??

27. júní 2008 klukkan 17:42

... Nehh, ég er ekki komin þannig lagað í sumarfrí.. er nottla enn í fæðingarorlofi, en það sem ég á við er að ég er ekki enn farin að fara í ferðalög...

Það ætti samt ekki að vera neitt því til fyrirstöðu.. við allavega erum búin að festa kaup á tjaldvagni. Jú, það er kannski smá fyrirstaða... bóndinn og eldri gaurinn minn, eru ekki komnir í frí. En það fer að styttast í það...

En núna er verið að vinna í því að reyna að fegra garðinn hjá okkur. Við sáum auglýsingu frá einhverjum köllum og báðum þá um að gera okkur tilboð. Tilboðið hljómaði mjög vel.. eiginlega lygilega vel.

Aðfarirnar þykja fremur frumstæðar sem þeir nota til verksins. Þeir fella niður trén, sem nota bene eru um 40 ára gömul og nú sést til sólar í garðinum, en saga greinar og drumba niður í ekki neitt og flytja þetta í tveim stationbílum!! Nágrannarnir eru ekkert allt of kátir með "framtakssemina" hjá þeim, því þeir komu á miðvikudag og söguðu allt niður og lokuðu götunni fyrst um sinn og ýttu svo draslinu til, þannig að ekki er hægt að ganga á gangstéttinni fyrir framan og heilmikill sóðaskapur af þessu.

Þeir létu svo ekkert sjá sig í gær framan af, bóndinn hringdi í aðalkallinn sem sér um þetta og sá bað um innlegg á reikninginn sinn! Það klingdi einhverjum bjöllum hjá mér og ég vildi ekki að bóndinn væri að leggja inn á reikninginn... en jú, ég skil svo sem alveg að aðalkallinn hafi viljað fá smá innlegg á reikninginn, þar sem hann hefur enga tryggingu fyrir því að fá greitt fyrir að fella niður trén.

En svo komu þeir síðdegis í gær, tvær ferðir til að taka drasl og flytja það í tveim station bílum.. það var öll vinnan í gær. Illa leist mér á blikuna í morgun, þegar þeir voru ekki komnir en svo komu þeir jú, eftir að bóndinn hringdi í þá.. skömmu eftir að þeir komu, kemur nágranna kona mín úr húsi nr 27, mitt er nr 35 og hellir sér yfir þá.. áður hafði hún víst skammast í konunni fyrir ofan mig.

En skýringarnar sem maðurinn gaf á þessu, var að bíllinn bilaði í gær og svo keðjusögin ( þeir eiga eftir að saga niður eitt tré og meira af drumbunum sem standa út í loftið eftir að þeir felldur trén). Svo þegar við komum heim áðan eftir að hafa farið leiðangur um bæinn, þá hafði lítið breyst síðan um hádegi.. ástæðan: BILUÐ KEÐJUSÖG!!

Okkur líður núna eins og ég hafi.. miðað við aðfarir þessara manna, eins og ég hafi ráðið þessa menn í að grafa skurð, en þeir mætt svo með teskeið til verksins! Vona bara að þeir klári þetta.. svo ég fái ekki stóðiðaf nágrönnunum inn hérna með látum!

Svo er það nú eitt.. skil ekki alveg þetta "flog" sem kellingin í númer 27 tók. Hún hótað víst að kalla til lögreglu vegna draslsins sem þessir menn skilja eftir sig... nú eru s.s tveir dagar síðan þetta hófst og að geta ekki sýnt okkur í húsinu þá tillitsemi og þolinmæði fyrir framkvæmdunum, er soldið leim. Það er ekki eins og gatan sé lokuð.. þetta hefur engin áhrif á hennar hús eða neitt.. við erum í 35 s.s og hún í 27!!

Við erum get alveg fullyrt, aldrei með nein læti í götunni.. erum ekki með standandi partý og fer minnst fyrir okkur í götunni.. það að hóta á okkur lögreglu er með ólíkindum.

Í húsinu við hliðina á hennar húsi, er bílskúr þar sem hljómsveit heldur til og spilar allann liðlangann daginn.. ÞUNGAROKK!! Þó ég gæti, er ég ekkert að fetta fingur útí það.. eða vespurnar sem þjóta á ógnarhraða hvað eftir annað um götuna.. ökumennirnir búa í götunni og eru bara að testa hvað þær komast hratt, með tilheyrandi hávaða.. það er lögreglumál.. hámarkshraði í götunni er 30, þetta er umtalsvert meir hraði en það...

Æi, ég vil auðvitað að það sé gengið frá þessu drasli.. en þetta fylgir bara niðurfellingu trjáa og að snappa á gaurana eða íbúa hússins og það er einn og hálfur dagur síðan.. finnst mér soldið gróft.

Ég hef leyfi til að gagnrýna þeirra vinnu, það er ég sem borga þeim fyrir vinnuna. Þeir hafa bara ekki verið að sinna henni sem skildi og út á það er ég að setja. Ég geri mér fulla grein fyrir að þetta geti tekið tíma.. en það kemur konunni ekkert við!!

Jæja.. læt þetta duga í bili

Er enginn að sjá það nema ég...

16. júní 2008 klukkan 20:02

.... af hverju Novator.. fyrirtæki Björgólfs Auðmanns, ætlar að borga kostnaðinn sem fylgir því að flytja eitt stykki ÍSBJÖRN úr Skagafirðinum?!

Það er ekkert lítið búið að tala um ísbjarnardrápið í fjölmiðlum jafnt hérlendis sem erlendis. Skaðlegt fyrir alþjóðlegann bisness mann að koma frá landi, þar sem ísbirnir eru felldir "eins og ekkert sé"!!

Björgólfur er að bjarga eigin skinni en ekki ísbjarnarfeld!

Ég er ekki hlynnt því að auðmenn geti gefið út tilkynningu sem þessa og notað aðstæður sem þessar, til að bjarga peningamaskínunni!

Hvað segir það um okkur sem þjóð, að íslenska ríkið geti ekki staðið straum af því sjálft, að bjarga ísbirni frá dauða??

Um það má svo deila, hvort eigi að bjarga dýrinu frá drápi, ég sé enga réttlætingu í því að halda heimilisfólki á bæjunum í kring heima eða eins og hugmyndir eru uppi.. flytja það af bæjunum..

Það að ísbjörn geti haldið fólki í "gíslingu" er útúr kortinu, þar sem þetta eru jú ekki heimkynni ísbjarnardýra... það er verið að stefna æðarvarpi í hættu.. sem bændur meðal annars hafa lífsviðurværi sitt af.

Gott og vel ef það tekst að bjarga dýrinu, en mér finnst það ótrúleg áhætta að bíða bara og sjá.. með dýriðí nokkur hundruð metra fjarlægð frá mannabyggðum.. þar sem hættan er meiri en þegar ísbjarnardýrið var fellt fyrir tveim vikum.

Það er alveg klárt mál, að hafi ísbjörninn ekki verið drepinn fyrir tveim vikum, væri þessi dauður!!

Skyldi plebbaliðinu sem sat og sötraði kaffi á meðan það var í dágóðann tíma á fundi að taka ákvörðun um hvað ætti að gera, ekki líða vel með það að setja fólk í lífshættu... "Menn Vs Ísbjörn"?!

Ykkur að segja, þá var ég á ferðinni ekki svo langt frá í gær.. sótti s.s dóttur mína norður og var þar um helgina... við Árni göntuðumst með það að við sæum ísbirni upp á fjalli, vorum að skima eftir ísbirni... auðvitað allt í gríni, en maður minn.. hefði maður svo séð þetta flykki.. tryði einhver manni, þar sem svo nýlega var búið að sjást ísbjörn á þessum slóðum??

Ég fer ekki þessa leið aftur, nema á vel útbúnum Hummer.. hvar ég ætla að fá hann, er svo annað mál! :D

Dóttir mín...

10. júní 2008 klukkan 23:43

.... hún er orðin svo stór og ég veit ekki hvort það er erfiðara fyrir mig eða hana, þegar hún mætir nýjum áskorunum.

Um daginn fór hún norður til ömmu sinnar og afa, fékk far með frænda sínum og hún er s.s enn fyrir norðan. Auðvitað er þetta bara gaman fyrir hana og skemmtilegt og allt það.. en mér sjálfri finnst svo ótrúlegt hvað þetta líður allt saman hratt!!

Mestu áhyggjurnar sem ég hafði, var hvernig þetta myndi vera fyrir hana... hvort hún strax á fyrsta kvöldi fengi heimþrá og hvernig hún myndi bara yfir höfuð höndla það að vera án okkar.

Ég er búin að tala við hana í síma á hverjum degi og í kvöld sá ég hana svo í gegnum webcam og heyrði í henni í gengum síma um leið og það var sko ekki að slá á söknuðinn! Ég sakna hennar óskaplega mikið..... jú, jú.. stundum talar hún og talar og er með tuð og væl og frekju og stæla og ákveðin með eindæmum.. en ég sakna þess!!

Svo er ég ein í algeru karlaveldi hér heima og það vantar smááááá girlpower! :D

Áskorun

09. júní 2008 klukkan 16:14

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ?

Já, amma mín heitin hét Sigurrós. Hún var í raun frænka mín, en gekk mömmu í móðurstað og ég þekkti hana aldrei öðruvísi en sem ömmu mína :)

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? 
Hmm.. það man ég ekki, í síðustu viku kannski. Annars búin að vera í nokkuð góðu jafnvægi.. tárast kannski við og við, en ég man ekki hvenar ég virkilega grét síðast. 


3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? 
 

Neibb 


4. HVAÐA KJÖT FINNST ÞÉR BEST?

Lambakjöt!!!!!!

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG? 

Já, eina stúlku og tvo drengi :D

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN?

Já, auðvitað! :D


7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ?

Já, nokkuð mikið.. en ekkert alvarlega mikið :D

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ?

Mig hefur alveg langað til að prófa, en er allt of lofthrædd til þess.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Morgunmatur?? Ég borða varla morgunmat.. það er bara gripið í það sem er hendi næst, einhvern ávöxt.. fengið sér kaffi.. en það er ekkert endilega eitthvað uppáhalds.

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?

Nei, bara vippa mér uppúr þeim :)


11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? 

Stundum er ég það, en það koma tímar sem maður er eins og gler.. auðbrjótanleg.


12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR?

Súkkulaðiís, bananasprengjuís og nánast allt frá Ben&Jerry's

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS?

Framkoman við annað fólk, hvernig það ber sig almennt.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ? 

Bleikur.. rauður fer bara fáum konum vel.


15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG?  

Hvar á ég að byrja? Niðurrifstarfsemin á sjálfa mig, síþreytan og orkuleysið.

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ?  

Ömmu minnar heitinnar... og vina sem ég hef ekki séð lengi.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ? 

Já, það er svo gaman að lesa svona :D

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? 

Ljósum gallabuxum og svörtum sokkum.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR?  

Hamborgari, franskar, kokeilsósa og kók.. Aktu taktu matur :D 

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?

Friends í sjónvarpinu.

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? 
Túrkís blár.


22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ?

Lyktin af börnunum mínum og manni og ilmvatnið mitt :D

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ?

Árna minn.


24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ?

Ég fékk þetta ekki sent, fann þetta á netinu.. en mér líkar mjög vel við þá manneskju sem á síðuna sem ég fann þetta á :)

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ?
Fimleikar hjá dóttur minni, handbolti, dýfingar og frjálsar íþróttir.

26. ÞINN HÁRALITUR ?

Spanjóla dökkur :)

27. AUGNLITUR ÞINN?

Blá, grá, græn, gul...

28. NOTARÐU LINSUR ?

Já, á djamminu eða við fínni tækifæri.

29. UPPÁHALDSMATUR ?

 Hmm... hamborgarhryggur, humar, rétt steikt kjöt með öllu tilheyrandi.... æ, það er svo margt gott til :D


30. HVORT LÍKAR ÞÉR BETUR, HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?

Bæði..

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ?

Bubba byggir myndin, fór á hana með eldri syni mínum. :)

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ?

Bara koss

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?

Súkkulaðimús.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?

Have no clue! :D

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ?

Have no clue! :)

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ?
Jane Austen leshringurinn.


37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ?

Er ekki með músarmottu...

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?

Horfði ekki á sjónvarpið..

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?
Rollingarnir finnst mér persónulega betri, en alveg ágætis lög samt frá Bítlunum.. bara ofspiluð sum...


40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?

Til Möltu. Hef ekki farið víða.. en já, Malta er það lengsta..

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?

Er það ekki annarra að svara því? Ég allavega er alveg ófær um að benda á mína eiginleika...

42. HVAR FÆDDISTU ?

Landsspítalanum í Reykjavík... býst við að fæðingin hafi farið fram í rúmi :)

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ?

Öllum  :)

Tiltekt...

09. júní 2008 klukkan 14:40
..... já, á þessari síðu, ekki heima sko.. ERTU FRÁ ÞÉR?! :D

Lagaði s.s til í bloggarahópnum og eyddi út síðum sem ekki hafa verið virkar í talsvert langann tíma. Sumir eru komnir með nýjar síður og þá mér ekki kunnugar eða hættir að blogga.

Vilji einhver að ég setji sig inn í blogg tenglana eða einhver breytt blogginu sínu, látið mig þá endilega vita svo ég geti skellt ykkur hérna til hliðar.. nú eða ef einhver hefur tekið upp á því að byrja að blogga.. látið mig vita! :D

Tvískinnungur...

03. júní 2008 klukkan 19:06
... Ég á ekki til orð yfir fárinu í kringum einn ísbjörn!

"Nei, ekki drepa ísbjörninn.. bla bla bla bla bla!"

Átti að bíða eftir að hann dræpi einhvern?! Nei, það má drepa stórhveli á hafi úti.. en ísbjörn á ráfi upp á fjalli, nærri byggð og sveitabæjum... náttúrverndasinnar missa þvag og saur yfir því að hann hafi verið drepinn!!

Ég fer þessa leið á leið norður og hefði ekki viljað mæta ísbirni á vegi mínum, á leið með fjölskylduna norður!

Ekki voru til lyf til að svæfa dýrið og bara ekki hægt að taka óþarfa sénsa!

Ég skil ekki þetta fár yfir þessum birni, yfir mörgu öðru mætti hefja umræðu um og annað mikilvægari til umræðu en einhver ísbjörn!

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins