Prófíll

  • Nafn: Sigurrós
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: Gift
  • Um mig: ÖHH.... ţađ er erfitt ađ fara ađ segja eitthvađ ákveđiđ um sig, en ég skal reyna :o) Ég heiti s.s Sigurrós og er fćdd í Reykjavík en uppalin í Grindavík. Ég bý ţar ţó ekki lengur :o) Ég bý í Reykjavík međ Árna mínum og ţremur börnum okkar, ţeim Elínrós, Ragnari Gabríel og Kristófer Smára. Ég er í barneignarleyfi og líkar ţađ fínt, en var áđur ađ vinna í Ikea og ţar áđur í námi á Sjúkraliđabraut í FÁ. Ég hyggst klára námiđ fyrr en seinna:D Ég hef líka unniđ víđsvegar um landiđ viđ ađallega fisksstörf, ţannig ađ ég er engin pemppía... bara hörkukvendi ţó ég segi sjálf frá! :o) Ég held ég sé bara ósköp venjuleg stelpa annars, međ ósköp venjuleg áhugamál og reyni ađ hafa gaman ađ lífinu :o)

Atburđarteljari

Spjallkubbur

..Augnablik

Klukkan

Könnun

Ćtlarđu ađ segja nei??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Sum börn eru pyntingarmaskínur...

28. nóvember 2008 klukkan 15:33

.... og þeirra á meðal er sonur minn yngsti! Hjálpi mér sko...

Áður en við fórum til Boston, hafði drengurinn tekið upp á því að vera með stæla flestar nætur. Vaknaði alltaf á sama tíma á næturnar og var vakandi meira og minna fram á morgun. Þetta þýddi langvarandi svefnleysi hjá okkur foreldrunum og því var Boston ferðin, kærkomin til hvíldar.. þó deila megi reyndar um það, hversu mikla hvíld var hægt að fá þar :)

Eftir að við komum heim, var eins og barnið hefði tekið umskiptingum, því það tók upp á því að sofa allar nætur og ekkert vandamál að koma því í rúmið..( En það hafði svo sem ekki verið mikið vandamál, nema stundum og stundum).

En í nótt breyttist allt til mikilla muna, drengurinn vaknaði á klukkutíma fresti í alla nótt!! Maður var rétt að festa svefn þegar hann svo vaknaði!!

En jæja, ég vaknaði svo alveg með drengum um hálf 8 í morgun.. stjarfari en allt af þreytu og drengurinn varð síðan mjög þreyttur og ég hafði ákveðið að halda honum vakandi eitthvað, svo við gætum seinna lagt okkur.. ég ætlaði s.s að ná mér í smá kríu með drengnum.

Það var alveg ómögulegt kl 10, að halda drengnum vakandi.. hann var að sofna hér og þar, svo ég lagði hann inní rúm og ætlaði að sofna með honum. Við sofnuðum og hálftíma síðar.. drengurinn sprellandi og í miklu stuði, en mamman... hún var rænd svefni, enn einu sinni!!

Kl 13, var drengurinn orðinn þreyttur í annað sinnið og að sofna í fanginu á mér. Ég ætlaði ekki að lofa honum að sofna.. en ég freistaðist til þess og aftur hálftími sem drengurinn svaf og mamman full af gremju yfir að ná ekki smá lúr!

Ohh.. ég verð farin að sofa ábyggilega kl 20 á föstudagskvöldi.. öfga næs bara eða þannig :)

Upprisin :)

24. nóvember 2008 klukkan 13:49
Já, ég hef risið upp frá bloggletinni.. agalegt að maður sé svona latur með bloggið :)

En já, Boston ferðin var æðisleg og ég ætlaði alltaf að blogga meira um þessa ferð.. margt meira fyndið og skemmtilegt sem gerðist í ferðinni, en ég nenni ómögulega að segja þær sögur hér.. kannski seinna, en ég segi allavega þeim sem vilja heyra, frá því í eigin persónu :D

Ég var viðbjóðslega þreytt eftir ferðina, enda gekk maður um allt og skoðaði helling og daginn sem við fórum heim, kíktum við á Harvard svæðið og það var sko ekki leiðinlegt að spóka sig innan um gáfnaljósin sem þar stunda nám :)  og þá um kvöldið áttum við flug heim.. eða um kl hálf 9 á staðartíma. Ég gat ekkert sofið í vélinni heim og þegar heim var komið, var kl 20 mínútur í 7 að morgni á íslenskum tíma, þannig að maður missti eina nótt og ég var já, dauð úr þreytu!

En þetta var já, gaman og mikið ævintýr!

Og maður lendir í ævintýrum líka á Íslandi sko.. hehehe, eins og liðna helgi :) Fór með nokkrum skvísum á ball með Geirmundi á Kringlukránni! Að hluta var farið upp á húmorinn að gera, en þetta var auðvitað mikið fjör, því hann Geiri klikkar ekki á stuðinu! :D Get ekki sagt að ég sé mikill aðdáandi hans.. en hann kann að fá fólk út á gólfið! :D

Mikið og alveg ábyggilega langflestir voru á svipuðum aldri og foreldrar mínir og það voru engin vandræði á þessu liði, bara allir í fullu fjöri... eins og enginn væri morgundagurinn! :D

En jæja, hef þetta ekki mikið lengra í dag, við mæðgur erum að baka kanilsnúða... skólafrí þennan daginn og hvað er þá betra en að baka? :D

Meira frá Boston! :)

12. nóvember 2008 klukkan 00:07
Hey'ya! :)

Nú held ég bara að orkubú okkar Árna sé komið að þrotum. :) Það sem við erum ekki búin að þramma og þramma og versla og versla.

Einu skórnir sem við erum búin að kaupa handa okkur, eru betri skór til að ganga á, svo við getum farið meira og lengra.. bara mætti segja að við værum búin að slíta út skósólunum á hinum skónum og já.. komin á "nýjar tuðrur" hehehehe :D

Talandi um að labba aðeins lengra og raunar of langt...

Við tókum smá rölt og ákváðum að fara í gegnum einhverjar götur til hliðar við aðalgötuna, sem hótelið stendur við.. vorum búin að labba áður aðeins styttra en til hliðar mikið lengra og þannig endað á aðalverslunargötunum, þarna á sunnudaginn.. en s.s í gærkvöldi ákváðum við bara að fá okkur góðan göngutúr og skoða nágrennið.

Það skal tekið fram að það var komið myrkur og klukkan bara um 6 að kvöldi hér. Áður en við vitum af, erum við komin í Kínahverfið og vorum skömmu áður búin að furða okkur á stuttu bili á milli hjálpartækjabúða og það sem við teljum vera hóruhús eða strippstaði.. furðulegt, en það eru engin merki um þessa staði að degi til og maður labbaði þarna rétt hjá til að fara í Quincy Market!!

En þegar hér var komið, var ég farin að vera soldið mikið hrædd, betlarar á hverju götuhorni og já.. okkur veitt eftirför í smá stund af furðulegum gaurum. Ég sagði við Árna, að við skildum út úr þessu hverfi strax og á aðalgötuna þar sem hótelið stendur við.. það er mjög róleg og góð gata og maður er ekki vitund hræddur að ganga eftir henni. :)

Ákváðum að skella okkur á írskan pöbb rétt hjá hótelinu og þá datt af mér skollans andlitið! Haldið að gaurinn í dyrunum hafi ekki meinað okkur aðgang í fyrstu, á þeirri forsendu að aldurstakmarkið væri 21 árs?!! Ég hló nú að kauða og sagðist verða 31 eftir tvo daga þá s.s, hann vildi fá að sjá ID og ég sýndi honum debet og kretitkortið mitt, en þá var það ekki tekið gilt sem ID kort, en Árni hefði getað farið inn á ökuskírteininu sínu.. og ég er btw ekki búin að endurnýja mitt.. yfir í nýkju skírteinin, á s.s enn "pappaveggspjaldið" fyrir ökuskírteini og ég er ekki með það hér.

Þá voru góð ráð dýr.. hvernig í skollanum ætlaði ég að fá mér öl og ég ekki með neitt gilt ID kort?! Haldið að ég hafi ekki bara fattað það að arka upp á hótel, ná í vegabréfið mitt og kem til baka, þá er annar í dyrunum og hann hleypti okkur inn án þess að kanna okkur!! Það var þá fyrirhöfnin eftir vegabréfinu! :)

Ég hlakkaði svo til að reka vegabréfinu í smettið á dúddanum sem áður var í dyrunum...

Heyrið, svo erum við Árni alltaf að rekast á furðulegt lið sem talar við sjálft sig.  Td leigubílstjórinn í gær, ég held að það hefði verið öruggast fyrir okkur að fara út á ferð..  bara upp úr þurru fer kallinn að hlæja bara og blaðra út í eitt og ekki var hann að tala við okkur, en segir svo.. "Ég er svo að fíla þetta lag í spilaranum" og alltaf af og til bara hló hann og muldraði. Við Árni litum á hvort annað og vorum við það að springa úr hlátri. Hann s.s keyrði okkur frá Cambridgeside Galleria og það er sko flott mall og nóg verslað þar! :)

Svo einn annar eftirminnilegur en ákaflega krúttlegur og um leið pínulítið creepy gaur.

Hann er blindur og af og til heyrðis í honum eitthvað uppúr þurru og þá oftast sama ræðan. Td þegar hann kom að kassanum og búin að arka um allt með blindrastafinn sinn: "Nú, er ég komin að kassanum.. it´s amazing.. aldrei hélt ég að ég myndi finna hann" eða kemur að goskæli, tekur utan um dós og sama ræðan: Er ég komin að goskælinum.. it´s amazing... og svo framvegis" hehehe.

Leit alltaf út eins og hann væri að uppgötva heiminn í allra fyrsta sinn! :D Það var bara svo fyndið alltaf þegar hann sagði AMAZING!! :D


Úff.. það var samt svo mikið meira sem ég ætlaði að segja ykkur, en ég er alveg gjörsamlega búin í kollinum.. eins og ég sagði... orkan að verða búin :)

Fórum í Wretham áðan, ætluðum í gær og leigja bíl, guggnuðum á því og þá vorum við búin að missa af rútunni þangað, svo við fórum í dag.. 170 verslanir, komumst ekki yfir þær allrar og versluðum aðallega í barnabúðum.. en þegar kom að því að finna eitthvað fyrir okkur og fara í td  Levi's, þá var rútan komin til að sækja okkur og við cancelluðum Levi´s, því annars hefðum við svo þurft að bíða í 3 tíma eftir næstu rútu og nei.. við bara nenntum því ekki, enda farið að kólna og orðið all dimmt, en við vorum búin að vera þarna frá 11- 17 og já.. komumst ekki yfir allt!!

Nú skal s.s slakað á og fá sér öl á hótelbarnum.. *hvísl* fórum þangað í gærkvöldi og ég þurfti afar lítið, til að já.. kippa hressilega" og ég farin að sofa kl 23... hahahaha :)

Á íslenskum tíma er kl komin yfir miðnætti eða 13 mínútur yfir, svo ég á því löglega afmæli núna.. heheheh.. þarf að bíða aðeins lengur eftir Boston afmælinu mínu hehehe, en s.s: "Til hamingju ég, með afmælið!" hehehehehe :D

Kveðjur og knús frá okkur Árna í Boston!

Luv.

Já, eitt.. þarf að finna stærri pakkningar af mogm!! :S Vona að ég finni þær á morgun :S

Kveđja frá Boston!

09. nóvember 2008 klukkan 23:10

Hæ, hæ þið öll á landinu kalda! :)

Lífið er yndislegt héðan frá Boston! Ég gæti skrifað svo margt um upplifun okkar Árna af borginni og allt er það blússandi jákvætt!

Við erum s.s búin að vera hér í um það bil ( þegar þetta er skrifað) sólarhring og allt gengið vel. Eina sem ég gæti kvartað yfir er bara ég sjálf yfir því hvað ég var búin að stressa mig mikið upp og var nánast skjálfandi á beinunum í flugstöðinni, þegar kom að því að "innrita" okkur í landið.. ef ég hefði ekki getað bara gert illt verra með því og litið út eins og já.. "pure terroist" :)

En já, þetta er búið að vera alveg hreint magnað það sem af er, við vorum ennþá svo innstillt á íslenska tímann og fórum að sofa um kl 11 að kveldi hér og þá er kl um 4 að nóttu á Íslandi. Og vorum við þá búin að vera vakandi allt of lengi. En við vöknuðum svo kl hálf 8 í morgun á Boston tíma og vorum komin út kl 9 og vorum að rúlla inn núna um kl hálf sex!!

Þið megið geta tvisvar hvað við erum búin að gera í allann dag! :D

Ég er búin að fara á Dunkin Donuts og fékk heitasta kakó ever, er enn að jafna mig eftir það.... er líka búin að smakka Starbucks frappucchino og sorry folks, ekki mér að skapi.... fannst þetta ekkert til að missa sig yfir.

En í dag s.s settum við stefnuna á Quincy market og vorum búin að ráðgera að kíkja í HogM og Macy´s. Við urðum dauð eftir allt labbið og skoðeríið að HogM og Macy´s bíða eftir okkur á morgun, kíktum reyndar aðeins þar inn áðan og í hjúts skóbúð og já..  ég er alveg búin að sjá helling sem ég ætla að versla þar :D Og í skóbúðinni.. jæks, ég hef aldrei séð eins mikið samansafn af flottum stígvélum og skóm á einum stað.. ég gæti alveg misst mig þar :)

Keypti reyndar í Macy´s snyrtidót frá Mac og vá, hvað ég held að afgreiðslugellan hafi verið ánægð með mig, ég gjörsamslega lét hana snúast í kringum mig og keypti helling af henni og svo spyr hún: "Are you a tourist?" og ég játti því og hún spurði hvaðan ég væri að koma og ég sagði frá Íslandi og hún spurði er ekki Mac þar? Ég sagði jú, en það er hrikalega dýrt snyrtidótið þar.. hún ok, that´s why you buy alot of it! :D

Það sem ég hef hvað helst tekið eftir er kurteisin og almennileg heitin í fólki hér, sem dæmi get ég nefnt að við vorum á rölti um miðborgina og vorum að reyna að átta okkur á, hvar við værum stödd og hversu langt væri á Quincy Market. Vorum bara rétt búin að taka upp kortið af borginni, þegar kona kemur aðvífandi og spyr að hverju við séum að leita og hvort hún geti hjálpað. :) Fólk líka búið að bjóðast til að taka myndir af okkur saman og svona.

Hey, og svo er fullt af fólki hér merkt AC/DC... það eru s.s tónleikar með þeim hér í kvöld held ég og við grátum það sárt að hafa ekki haft um það hugmynd, það er auðvitað allt uppselt :( En við vorum búin að fylgjast með miðum á ýmsa viðburði sem eiga að vera hér og athuga hvort eitthvað eigi að vera um að vera hér á meðan við erum þarna og það var á þeim síðum sem við skoðuðum, voða lítið sem fellur að okkar áhuga og þá ekkert um þessa tónleika!!

En fyrir neðan hótelið sem við erum á, er massa klúbbur og dansstaður.. komumst að því að Benni Benassi var hér 6 nóv, sem er grautfúlt líka.. en á móti kemur að David Guetta er hér 12 nóv og það er by the way afmælisdagurinn minn og ætlum við að skella okkur að öllu óbreyttu. Við ætluðum að kíkja á lífið í gær, en hjálpi mér.. við vorum alveg dauð og hefðum drepið niður stemmninguna hjá fólki! :)

En jæja, ætli ég láti þetta ekki gott í bili héðan frá Boston :)

Svo getur vel verið að dagsplanið fyrir morgundaginn breytist.. Árni hérna yfir öxlina á mér að leggja til dagsferð í outlet mall sem kallast Wretham og fara svo í Soutshore plaza :)


Gleðikveðjur!

Sigurrós og Árni

Ţar sem ţađ er komiđ fram yfir miđnćtti...

06. nóvember 2008 klukkan 02:04
... þá er ekki úr vegi að fara að sofa, en eigum við að ræða það að það eru 2 dagar í að ég fari til BOSTON?!

ÍSKRRRRRRRR!!!!!! :D

Bloggleti...

23. október 2008 klukkan 21:55

... ég ætla að vera á jákvæðu nótunum. Ég ætla EKKI að segja að ég sé ömurleg og ömurlegur bloggari.

Maður er svo oft í því að rífa sig niður, drulla yfir sjálfan sig og vitið til.. það er svoooo auðvelt! En mun erfiðara er að vera jákvæður og afhverju er það?!

En allavega ætla að vera ógó væmin og jákvæð... því ég má það!! :D

Ég ætla að þakka fyrir það fallega og góða sem ég á í kringum mig.

Ég er ótrúlega stolt af börnunum mínum, manninum mínum,  nánustu ættingjum mínum og vinum!

Lífið getur farið illa með mann og maður hefur svo sem ekki farið varhluta af því, en það hvernig maður spilar úr hlutunum ræðst soldið af því, á hvaða stað maður er í lífinu í dag og ég er á svo sannarlega góðum stað! :D

Auðvitað kemur það til af því, að maður veit hvað maður vill og hvað maður vill ekki.. en það hefur ekki alltaf verið svoleiðis.. stundum þarf maður bara reynsluna úr lífinu, til að átta sig á hvað maður vill fá út úr lífinu og hverju maður vill geta breytt og bætt :)

Ég get alveg játað það, að oft reynist erfitt að játa það og sjá það að ég er víst sterk og dugleg og bestust og frábærust og allt það :) En ég ætla að tileinka mér jákvæðni eftir fremsta megni! :)

Og sorry peepz, ég ætla EKKI að afsaka þessa væmni! :D

Ég á afmćlisbarn

14. október 2008 klukkan 15:16
Ótrúlegt en satt, þá er örverpið mitt orðið 1 árs!! Mér finnst alveg ægilega stutt síðan hann fæddist og man ég það eins og það hafi gerst í gær!

Svo tók við erfið vika, þar sem hann var svo veikur á vökudeild og allt þetta man ég nákvæmlega..  og að það sé ár síðan þetta allt saman var, er bara ótrúlegt!

En á eftir verð ég með smá veislu fyrir molann og held ég að það verði nú bara gaman fyrir hann :) Fá sína afmælisköku og pakka..þó hann hafi nú ekki mikið vit á þessu.. en ég er búin að syngja nokkrum sinnum afmælissönginn fyrir hann og hann klappar og dillir sér, voða gaman :D

Helgin

13. október 2008 klukkan 16:17

Hjúkket!

Hélt ég væri búin að týna lykilorðinu hérna, en það reddaðist! Hjúkk, hjúkk, hjúkk! :D

Helgin sem var að líða, var bara næs! Eiginmaðurinn og börn fóru norður til tengdó og auðvitað saknaði ég þeirra.. en þetta var samt ekki langur tími og nóg að gera einhvernveginn svo þetta tók fljótt af :)

En á föstudagskvöldið fékk ég Ástu vinkonu í heimsókn og seinna um kvöldið komu Inga Dóra og Adda. Skömmu seinna fór Ásta greyið, veik heim.. en við hinar skelltum í okkur nokkrum glösum og skotum og héldum sem leið lá í bæinn, eftir massívar myndatökur og það skal sagt strax að þessar myndir sem teknar voru, eru flestar ekki birtingarhæfar lol :D

En svo á laugardagskvöldið, hélt ég stelpupartý sem tókst alveg frábærlega og sátum við og spjölluðum til klukkan rétt rúmlega fimm. Mega hressar og tíminn  svo gjörsamlega flaug áfram.

En ég get ekki sagt að dagurinn í gær, hafi verið eitthvað "æðis", smá þynnka við völd og merkilegt nokk.. ég gat bara ekki sofið út þessa helgi, vaknaði alltaf eldsnemma og fór að taka til og það var í raun bara gaman! Því það var ró og friður og ég gat tekið minn tíma til þess.... enginn hundur á vappi eða börnin í tíma og ótíma að tuða. :)

En það var samt svo æðislegt að fá þau heim og ég er á því að það ætti að vera lögbundinn réttur hvers foreldris að fá frí eina helgi!

 

Kreppan

09. október 2008 klukkan 11:50
Nýtt kerfi hjá Bloggar.is og ég veit ekki hvađ á ađ vera í ţessum glugga... kemur í ljós :)... Nánar

Svartur dagur...

06. október 2008 klukkan 17:41
.. já, þetta er svartur dagur og grafalvarlegur fyrir þjóðina. Ég hyggst ekki tjá mig meira um það.. en í ljósi aðstæðna, tel ég rétt að þjóðin öll kveiki á kertum.. til minningar um lífsgæðakapphlaupið og ljóst er að enginn sigurvegari stóð uppi í því kapphlaupi :D

Þetta með kertið var djók sko... :D

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins