Prófíll

  • Nafn: Sigurrós
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: ÖHH.... það er erfitt að fara að segja eitthvað ákveðið um sig, en ég skal reyna :o) Ég heiti s.s Sigurrós og er fædd í Reykjavík en uppalin í Grindavík. Ég bý þar þó ekki lengur :o) Ég bý í Reykjavík með Árna mínum og þremur börnum okkar, þeim Elínrós, Ragnari Gabríel og Kristófer Smára. Ég er í barneignarleyfi og líkar það fínt, en var áður að vinna í Ikea og þar áður í námi á Sjúkraliðabraut í FÁ. Ég hyggst klára námið fyrr en seinna:D Ég hef líka unnið víðsvegar um landið við aðallega fisksstörf, þannig að ég er engin pemppía... bara hörkukvendi þó ég segi sjálf frá! :o) Ég held ég sé bara ósköp venjuleg stelpa annars, með ósköp venjuleg áhugamál og reyni að hafa gaman að lífinu :o)

Atburðarteljari

Spjallkubbur

..Augnablik

Klukkan

Könnun

Ætlarðu að segja nei??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

PIRR "#%%#$#$#&#$"#%"

28. september 2009 klukkan 15:04
URRG!!!

Sumt held ég að maður verði hreinlega að sætta sig við! Ég bara get EKKI prjónað! Það er annaðhvort það eða að ég er með athyglisbrest!

Þriðja tilraun varð gerð í dag.. var að verða búin með stoffið, þegar ég missi svo athyglina í eitthvað annað og þarafleiðandi.. lykkjur og allt fer í fokk!

Hnykillinn er svo trosnaður að ég þarf að kaupa nýjann, enda verður þetta ansi leiðinlegt, þegar maður er alltaf að byrja upp á nýtt!

Hæfileikar mínir liggja ekki á þessu sviði og ég bara verð að díla við það. Ætla jú samt að sjá hvað námskeiðið færir mér.. en námskeiðið byrjar á miðvikudagskvöldið. Átti að vera mánudagskvöld.. en verður s.s á miðvikudagskvöldum. Fáránlegt þar sem þetta er sjónvarpskvöld!!

Ji, hvað ég þakka fyrir að hafa ekki verið ein af landnámsfólkinu.. ég hefði ekki lifað lengi, án þess að kunna að prjóna.. ég hefði dáið úr kulda hreinlega... ja, hversu hreinlegt hefði það nú verið?? Hohohohoho.

Jöss!!

25. september 2009 klukkan 13:28
... fékk símtal í morgun um það að ég er komin inn í Janus, sem er náms og starfsendurhæfing. Það verður að viðurkennast að það eru soldið blendnar tilfinningar gagnvart því.. ég er ógurlega spennt að byrja en kvíðin um leið. Ég var einhvernvegin búin að búa mig undir það andlega að ég kæmist ekkert að fyrr en eftir áramót, þar sem mér var tjáð að líklegast kæmist ég ekkert að fyrr en þá, langur biðlisti og det hele.

En þetta verður bara fínt, komast í rútínu og já... hugsa um mig fyrst og fremst. Í stundaskránni er m.a heilsuefling, jóga, göngutúrar fyrir utan tvö-þrjú fög svona "almenns eðlis" :)

Svo er prjónanámskeið að fara að byrja á mánudagskvöldið. Jább, ég ætla að læra að prjóna vettlinga, grifflur og ullarsokka. Hlakka bara til, en á eftir að verða mér úti um uppskrift og garn.

Það er bara allt að gerast og það er nú bara svo oft þannig.. annaðhvort allt eða ekkert!

Tjá mjá!

Þetta blogg mitt...

22. september 2009 klukkan 20:08
... er bara orðið að vikulegum pistli hehehe, en það er betra en enginn pistill :D

Ja, hvað skal man segja? Eitt og annað að frétta síðan síðast. Er búin að vera að þvælast með Ragnar Gabríel til læknis og á spítala.. vegna streptokokka. Já, heimilislæknirinn vissi ekkert hvað amaði að barninu og ég get ekki sagt að það hafi verið traustvekjandi, þegar hann hóf að fletta uppí bókum og kalla til annan lækni. Spyr mig að því núna, af hverju ég hafi komist að hjá þeim lækni strax, en hefði þurft að bíða í 2 vikur eftir "mínum" heimilislækni??

En allavega.. drengurinn fær svona líka svakalega bólgur og útbrot sem verða svo bara að ljósum blettum í húðinni.. allt vegna streptókokka. Og læknirinn á barnaspítalanum var ekki lengi að sjá þetta, enda met ég þann lækni mikils. Fyrir svo utan starf sitt, hlýtur hún að hafa séð ýmislegt með sín 8 börn! :)

En að öðru..

Við hjónin fengum sitthvort símtalið nú í kvöld, frá sama fyrirtækinu. Símanum, takk fyrir pent.. ekki kreppa á þeim bænum víst :) En þrátt fyrir álit mitt á fyrirtækinu og vinnubrögðunum sem þar líðast, má starfsfólkið eiga það að hressleikinn drýpur af þeim og það í gegnum símann. Gaurinn sem hringdi í mig var hinn hressasti alveg hreint.. ég hafði bara gaman af spjallinu við hann, en honum tókst þó ekki að fá mig yfir til Símans. Það verður aldrei!

En hvað mig sjálfa varðar..

Ég finn að ég er að detta niður í einhverja "lægð", en ég ætla þó ekki að reyna að láta hana ná tökum á mér. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvað veldur, en dettur þó í hug það að mér kannski bara leiðist á daginn. Suma daga er ég full orku, fer í göngutúra, les, út að skokka.. og aðra daga gæti ég lagst undir feld bara. Ég var orkulaus að mér fannst í dag, þó ég hafi nú tekist á við "Mount Þvottarest" og þurrkað af, ryksugað og skúrað. Ég bara lagðist fyrir á eftir.. meikaði ekki meir.

Ég er líka að reyna að forðast það að vera með einhvern vælutón í blogginu mínu, en samt hafði ég tekið þá ákvörðun með sjálfri mér að hripa niður og vera ekkert feimin við að tala um líðan mína þá og þegar.. það verður bara gott seinna að lesa yfir og sjá. Ég tek stundum þannig syrpur.. fer yfir gamalt blogg, bara til að sjá hverju ég hef áorkað, það er þó nokkuð og alveg eðliegt að detta stundum niður, maður er jú einu sinni mannlegur! :)

Já,já...

15. september 2009 klukkan 18:27
... ég ætlaði að vera ógeðslega dugleg að blogga, svona fyrst ég var á annað borð byrjuð aftur. En ætla ekkert að vera að afsaka það neitt.. sumir eiga líf sko! Heheheheh :)

En það sem trónir hæst í kollinum á mér, þessa stundina.. er skóladagur dóttlunnar í dag. Hún sagði mér miður skemmtilega sögu, sem ég ætla ekki að fara nánar útí hér.. nema hvað að ég sendi svo í beinu framhaldi póst á skólastjórann, þar sem ég lýsi skóladeginum sem gekk svo fram af bæði mér og dóttlunni.

Nema hvað.. ég kemst svo barasta að því að skólastjórinn les ekki póstinn, allavega gat ég ekki merkt það á svarinu sem ég fékk. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu svari.. er enn að melta það.

Þar stendur: Lýsing dóttur þinna er í samræmi við það sem skólastefna okkar gengur út á.

Nú held ég eftir að hafa margoft lesið yfir þetta, að það vanti EKKI á all mikilvægum stað, því ég á annars bágt með að trúa að skólastefnan sé þessi eins og deginum var lýst fyrir mér. Ef svo er, þá er eitthvað stórfenglegt að í þessi skólakerfi.

En svarið var allavega stutt og snubbótt.. svona eins og staðlað svar.


Annars er bara svona allt sæmilegt að frétta af manni. Lífið gengur sinn vanagang. Örverpið algerlega að brillera á leikskólanum.. bara kveður mann og ekkert mál. Fóstrurnar tala um hann sem algeran engil og mjög auðveldan.. sofnar bara um leið í hvíldinni og er glaður og kátur strákur... ekta leikskóladrengur, svo ég hafi nú bara beint eftir. Það er ekki laust við að mömmuhjartað sé stolt af stráknum, en maður er pínu sár samt.. búin að vera með hann svo lengi heima og hann kveður mann bara eins og ekkert sé! :)

En jæja, ég nenni ekki að hafa þetta lengra..


MATUUUUUUURR!!!!

Grrr... það er sko mánudagur í mér!!

07. september 2009 klukkan 11:08
... það er sko alveg á hreinu!

Fyrir það fyrsta, átti ég erfitt með að vakna.. var voða þung og eitthvað bara.. já, eins og slytti að koma mér frammúr, sem hafðist jú.. það þarf jú að koma börnum í skóla og leikskóla.

Nema hvað.. svo átti ég tíma hjá lækni og beið bara með það.. gat ekkert lagt mig eins og mig langaði til, vitandi það að ég átti eftir að fara til læknisins.

Ég fer svo og fæ að vita að ég er kl tíma of sein!! En það var samt í lagi, en þetta var samt tími sem var löngu planlagður, enda ekkert hlaupið að því að komast að hjá lækni.. en tíminn var allavega styttri en ráð var fyrir gert og ég fæ í staðinn tíma hjá doksa eftir hálfann mánuð!!

En ojæja.. svo þurfti ég að ná á einstakling í síma, sem var upptekinn og skilaboð þá tekin og ég er að bíða eftir símtali og ég þoli það ekki!! Nenni ekki að bíða bara og bíða.. gæti tekið allann daginn!!

Svo þvottastúss.. er búin að setja í vél og svona, en bara meika ekki að taka úr henni og brjóta saman!!

URR.. það er sko mánudagur í mér og ég vona að þessi pirringur fjari út, eftir því sem líður á daginn!!

Helgarlok..

06. september 2009 klukkan 17:30

... já, þá er þessari yndislegu helgi að ljúka. Ég get ekki annað en verið sátt. Afslöppun útí eitt nánast :) Tengdó voru hérna hjá okkur og færði tengdamamma mér lopapeysu sem hún prjónaði og mikið ofsalega var ég himinglöð með hana. Ofboðslega flott peysa! :)

Við fórum í gærkvöldi í heimsókn með þeim, til bróður tengdamömmu og konunnar hans og það var bara notaleg kvöldstund. Þyrfti að vera svona oftar.. sem maðurheimsækir ættingja og vini. Maður er alltof heimakær, en það er kannski ekki nema von, ég er svo ofsalega ánægð með heimilið mitt. Búin að lífga heldur betur upp á það.. keyptum td á föstudaginn púða í sófann, þar sem þeir sem fyrir voru og fylgdu sófanum... voru orðnir svo lúnir og hættir að þjóna hlutverki sínu og þetta er bara allt annað líf og hrikalega kósý :)

En nú er karlinn farinn á körfuboltaæfingu og svo er meiningin að eiga kósý tv eða flakkarakvöld :) Ég vildi geta verið með eitthvað á prjónunum, en jú.. reyndar er það svo.. hálfkláruð verk, en ég er búin að skrá mig á námskeið í vettlinga og sokkaprjóni.. munum reyndar líka prjóna grifflur og ég get ekki beðið, en ég þarf að finna mér sniðugar vettlingauppskriftir og ef einhver lumar á slíkri, þá yrði ég ævinlega þakklát :)

En ég hef þetta ekki lengra í bili.

Upp er runninn föstudagur!

04. september 2009 klukkan 09:04
Jei! :)

Það þýðir að það er afslöppun með fjölskyldunni... ja, eða jú, tengdó er að koma í kvöld og ætlar að vera hjá okkur um helgina.. það er vissulega afslöppun samt, þó maður vilji geta tekið vel á móti þeim og er búið að taka íbúðinaí algera yfirhalningu hohohoho :)

Annars er ég bara í dag að dóla mér, veit ekkert hvað ég á af mér að gera.. ég er reyndar að bíða eftir þvottavélinni, svo það verður samanbrot og fleira skemmtó :)

Ég gæti jú líka sest niður og lesið bókina sem ég ætla að vera heila eilífð að lesa..

Ég gæti líka farið í göngutúr með hundinn...

Ég gæti líka farið í hjólatúr...

.... en ég nenni ekki neinu af þessu, en ég neyðist samt til að fara með hundinn í göngu og kannski geri það bara snöggvast.

Eftir það er ég að hugsa um að fara bara uppí rúm, kveikja á Tv og flakkara og horfa á eitthvað skemmtilegt :)

Annars hef ég ekki mikið meira að segja..

Bæjó dúllz! :)

Hola amigos!

03. september 2009 klukkan 20:18

Hæ, hæ allir saman!

Þetta er orðið ansi löng bloggpása sem ég er búin að vera í, en það er stundum svona. Ef maður hefur ekkert að segja, þá þegir maður hehehehe :)

Annars var og er nú hægt að fylgjast soldið með mér á facebook :)

En annars er nú bara allt ágætt að frétta af mér, mér líður ofsalega vel.. unginn minn yngsti er í aðlögun á leikskóla og það gengur vel, eldri strákurinn á leikskólanum líka og líkar þrusu vel og Elínrós komin í 3 bekk. Bara allt að gerast á þessum bæ :)

Ég er "bara" heima sem stendur og er á bið eftir að komast í náms og starfsendurhæfingu, en ég er búin að fara í mikla vinnu með sjálfa mig síðustu mánuði og já.. eftir að ég fékk alvarlegt meðgönguþunglyndi, þegar ég gekk með yngsta stubbinn.. og í raun má segja að það hafi gerst miklu fyrr, en ég fór ekki að vinna í þessu að neinu ráði fyrr en á meðgöngunni og fékk ég mikla hjálp við það... ég varð að díla við fortíðina og taka á erfiðum málum, þó það yrði mér erfitt.. fyrr kæmist ég ekki á leiðarenda og það er ekki fyrr en nú sem ég er að sjá árangur af allri þessari vinnu.

Búið að vera erfitt og ég ætla ekki að ljúga því, en oft var ég alveg að því komin að gefast upp og bara taka á málum með mínum hætti eins og ég hafði gert undanfarin ár.. bara loka, en það skilar engu að loka bara og ætlast til að þá hverfi allt.  Nei, til þess þurfti meira..

Ég er s.s í "endurvinnslu" hahahaha :) En ég s.s er að bíða bara eftir að komast inn og í framhaldi af því, ræðst hvað ég ætla svo að gera... Mig langar í nám en er ekkert viss með hvaða nám, en best er að vera ekkert að hugsa um það strax, einn dagur í einu :)

Hef þetta ekki lengra í bili.

Kveðja

Sigurrós

Þið bara verðið að fyrirgefa...

18. desember 2008 klukkan 23:27

.... ég er svo að njóta þess að vera búin öllu helsta jólastússinu, það eina sem má segja að sé eftir.. er að fara með frumburðinn í Kringlu eða Smáralind og lofa henni að velja gjöf frá henni og bræðrum hennar, til pabba síns og svo gjafir til bestu vinkvenna sinna og jú.. allsherjar jólaþrif eru eftir og þá mega jólin bara fara að koma.

Ég er samt hálf vönkuð yfir þessum jólum, nó djók! Er bara salíróleg eitthvað.. bara á "tillinu" og ekki til neitt sem heitir stress eða jólakvíði í mér...

Kannski er það , af því að ég er búin að kaupa jólagjöfina hans Árna, sem er alltaf erfiðast og dregst nánast alltaf fram á síðustu stund, en ekki nú :D

En ég er með eðal lag á heilanum, það er jólalag og hreint ekki flókið eða langt. Textinn segir allt sem segja þarf: "Jólaa jóla jólaa jóla jóla jól" :D

Ætli það sé ekki kominn tími á blogg??

12. desember 2008 klukkan 11:23

Jú, ég held það bara :)

Jólin á næsta leiti og vá hvað ég á eitthvað erfitt með að meðtaka það. Er búin að reyna ýmislegt fyrir mér í því að koma mér í jólaskap.. baka, skreyta, hlusta á jólatónlist.

Fór einmitt í gærkvöldi á jólatónleika hjá kór Léttsveitar Reykjavíkur, í Bústaðakirkju. Mjög hátíðlegir og fallegir tónleikar.. en úti fyrir var brjálað vatnsveður og það var nú ekki til að koma manni í jólaskapið, hefði verið annað upp á teningnum, ef um stórhríð hefði verið að ræða.. þá hefði ég farið í bilað jólaskap! :D

Annars hef ég það bara mjög fínt og mitt fólk líka. Eignaðist lítinn frænda í vikunni, Tobbi bróðir s.s orðinn faðir í 3 sinn og eins og hann sagði, á hann 3 og hálft barn :) En Júlla hans á fyrir einn son :D

Fékk að máta krílið litla og ji, hann er alveg guðdómlegur og pínku pons :)


Er svo glöð og sátt með allt í kringum mig, eitthvert krepputal er ekki að ná tökum á mér.. og á jólunum er bannað krepputal, bara alveg bannað!

Ég vil bara njóta jólanna og þess sem þau standa fyrir :D

Veit ekki hvað ég er að rausa hérna.. en allavega, hafið það gott!

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins